Verðskrá

Boltakort eru kjörin fyrir þá kylfinga sem heimsækja Bása reglulega, kortin virka sem inneignarkort og er hægt að fara með þau beint í boltavélina þegar mætt er í Bása. Kortið rennur aldrei út og þegar inneignin klárast getur þú fyllt inn á sama kort aftur hjá okkur í afgreiðslu. N1 korthafar fá 20% afslátt af öllum keyptum boltakortum hjá okkur, framvísaðu N1 kortinu þínu og fáðu boltakortin á enn betri kjörum. Viðskiptavinir Landsbankans frá 15% afslátt af keyptum boltakortum. Aukakrónukorthafar fá 10% endurgreiðslu í formi Aukakróna.